Shroud Hooded Jacket
37.990kr
Vörunúmer: 007457 CardinalA
Hlý og einstaklega þægileg flíspeysa fyrir kalda daga, almenna útivist og skíðamennsku. Hér er á ferðinni sérstaklega hlý flíspeysa sem hefur mikið notagildi og er heppileg sem millilag á köldum dögum og sem ytra lag þegar hlýrra er í veðri.
Fjölhæf peysa sem er hönnuð fyrir mikinn hreyfanleika. 259g Cycloknit efnið er lykilþáttur í góðum eiginleikum peysunnar enda er efnið þétt í sér en á sama tíma er peysan létt í og meðfærileg. Peysan er þolmikil og veitir góða einangrun ásamt því að hrinda vel frá sér raka.
Peysan er tilvalin í ótal margt, meðal annars í klifur og fjallamennsku þökk sé aðsniðnu sniði peysunnar sem veitir samt pláss fyrir grunnlag.
Við mælum með þessari!
- Efni: 259g m¯² Cycloknit fabric, Pontetorto® Tecnostretch 238 flísefni
- Teygjanleg hetta
- Hrindir frá sér vindi
- YKK® rennilás að framanverðu
- Tveir renndir vasar með földum rennilás
- Brjósvasi
- Þyngd: 520gr