0
Hlutir Magn Verð

"Farpoint 55" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Farpoint 55 thumb Farpoint 55
Farpoint 55 thumb Farpoint 55
Farpoint 55 thumb Farpoint 55
Farpoint 55 thumb Farpoint 55
Farpoint 55 thumb Farpoint 55

Farpoint 55

41.990kr

Vörunúmer: 10003678

- +

Nú í uppfærðu útliti, Farpoint 55 lítra bakpokinn er ferðataska og bakpoki sameinuð í frábæran ferðafélaga. Gerður úr  endurunnu bluesign® vottuðu nælon. Farpoint eru léttustu ferðatöskurnar frá Osprey sem einnig er hægt að nota sem bakpoka. Góðar axlar- og mjaðmaólar auk sterkrar burðargrindar svo að þú getur borið dótið þitt þægilega á milli staða. Aðalhólfið opnast alveg með rennilás líkt og á ferðatösku, skipulag verður því leikur einn. Að framanverðu er áfastur 15 lítra dagpoki sem hægt er að losa auðveldlega frá aðaltöskunni. Þegar ferðast er um flugvelli eða aðra fjölfarna staði er ekkert mál að smella dagpokanum í þar til gerðar smellur á axlarólunum til að hafa hann við höndina.

Farpoint hefur tvímælalaust sannað gildi sitt meðal heimsreisufara.

  • Fóðraðar axla- og mjaðmaólar með góðri öndun sem hægt er að loka af í renndu hólfi, allt eftir því hvort verið er að bera pokann á bakinu eða nota hann sem ferðatösku
  • Vasar úr teygjuefni framan á poka
  • Stillanlegt bak
  • Stillanleg brjóstól með neyðarflautu
  • Renndur netavasi innan á framhlið
  • Ólar í farangurshólfi til að halda búnaði á sínum stað 
  • Innbyggð festing fyrir lykla
  • Léttur burðarrammi
  • Fóðrað haldfang á hlið og ofan á pokanum sem að lítið fer fyrir
  • Opnast mjög vel, framhliðin er rennd í U svo að auðvelt er að raða í pokann
  • Læsanlegir rennilásar á aðalhólfi
  • 15 lítra dagpoki sem hægt er að renna framanaf aðalpokanum og nota sér
  • Fóðraðir vasar fyrir fartölvu og spjaldtölvu í dagpoka
  • Hliðarvasar úr teygjuefni á dagpoka ásamt sér vasa fyrir sólgeraugu og smá raftæki til að koma í veg fyrir að þau rispist
  • Festingar fyrir dýnu sem hægt er að taka af
  • Hliðarólar til að þjappa dagpokanum vel að aðalpokanum
  • Smellur fyrir dagpoka á axlarólum svo að hægt er að hengja hann framan á sig
  • Þyngd: 1,9 kg
  • Stærð: 55 cm x 35 cm x 32 cm


Tengdar vörur

6.690kr
Daylite Hanging snyrtitaska Blk
4.790kr
Pack Pocket zippered Blk
8.990kr
Ultralight Packing Cube Set WBlue
2.990kr
Travel Sentry® talnalás