0
Hlutir Magn Verð

"Ultra 3R MW" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Ultra 3R MW thumb Ultra 3R MW
Ultra 3R MW thumb Ultra 3R MW
Ultra 3R MW thumb Ultra 3R MW
Ultra 3R MW thumb Ultra 3R MW
Ultra 3R MW thumb Ultra 3R MW

Ultra 3R MW

42.690kr

Vörunúmer: 7640445454483

 
Exped
- +

Góður svefn á ferðalagi skiptir miklu máli. Ultra tjalddýnurnar frá Exped eru þægilegar og sérstaklega léttar sem skiptir máli í ferðum þar sem þyngd og stærð farangurs er forgangsatriði. Framleidd og hönnuð úr nýju 20D endurunnu ripstop efni sem er mjög endingargott.  

Til í nokkrum lengdum, Ultra 3 R er rétthyrningslaga eins manna dýna fyrir sumar, vor og haust. Létt dýna með stærri lofthólf ytra megin heldur en við miðju. Það þýðir að erfiðara er að velta sér af dýnunni í svefni um miðja nótt. Dýnan kemur með tveimur lokum. Sitthvort opið er notað til að blása í dýnuna og til þess að tæma hana. Innifalið í pakkningunni er dýnan, viðgerðasett, leiðbeiningar og pumpupoki. Allar nýju dýnurnar frá Exped eru gerðar úr endurunnu efni sem þýðir að minna vatn, orka og kolefni var notað við framleiðslu.

  • Hitastig: -5°C
  • R-gildi: 2.9
  • Þykkt: 7 cm
  • Lengd: 183 cm
  • Axlarbreidd: 62 cm
  • Fótabreidd: 62 cm
  • Þyngd: 520 gr
  • Pökkuð hæð: 27 x 11.5 cm
  • Rétthyrningslaga dýna
  • Fyrir einn
  • Inniheldur: Dýnu, geymslupoka, viðgerðarsett, leiðbeiningar, viðgerðar leiðbeiningar og pumpupoka
  • Tímabil: Sumar, vor og haust

Efni
20 D endurunnið ripstop pólýesterm, Oeko-Tex® 100 vottun. Laust við DWR efni.

Einangrun
60 g/m ² Texpedloft microfiber. Bluesign® vottun.