Safarica 5 Indian Hills 360
Vörunúmer: MAR-112183
Safarica Indian Hills 360 Air er uppblásið tjald sem veitir þægindi og lúxus á tjaldstæðinu. Þetta rúmgóða fjölskyldutjald er með svefnpláss fyrir 4 til 5 manneskjur - og hentar því vel fyrir fjölskyldur eða vinahópa. Tjaldið er auðvelt og fljótlegt í uppsetningu þar sem stutta stund tekur að pumpa í loftsúlurnar sem halda tjaldinu uppi.
Hentar fyrir mismunandi veðurskilyrði
Á sólríkum dögum er hægt að sitja undir rúmgóðu skyggninu sem veitir jafnframt gott skjól í öllum veðrum, t.d. meðan grillað er. Vatnsheldur botndúkurinn er límdur við tjaldið sjálft til að halda tjaldinu þurru. Öflugir tjaldhælahankar njörfa tjaldið kirfilega við á jörðina í öllum veðrum. Loftflæðið í tjaldinu er mjög notalegt vegna góðrar loftræstingar.
Notalegt forstofurými
Fortjaldið er mjög rúmgott og með stórum gluggum sem veitir góða birtu inn í rýmið. Gluggatjöldin eru þeim kostum gædd að geta myrkvað tjaldið að mestu leiti þegar þau hylja gluggana alveg. Þú getur auðveldlega stækkað rýmið til muna með því að fjarlægja fremsta þilið.
Svefnþægindi
Svefnrýmið er hægt að nota sem 2 aðskild rými en einnig er hægt að búa til einn stóran svefnskála með því að fjarlægja skilrúmið. Dökk svefnrýmin tryggja góða myrkvun svo hægt sé að tryggja góðan nætursvefn á íslenskum sumarnóttum.
- Tæknilýsing:
- Stærð (manneskjur): 5
- Fjöldi svefnrýma: 2
- Stærð fortjalds: 250 x 360 cm
- Stærð rýmis undir skyggni: 165 x 360 cm
- Stærð fyrsta svefnrýmis: 230 x 180 cm
- Stærð annars svefnrýmis: 230 x 150 cm
- Stærðir tveggja svefnrýma: 230 x 330 cm
- Stærð tjalds: 655 x 360 cm
- Þyngd: 25,5 kg
- Hæð í svefnrými: 190 cm
- Hæð í fortjaldi: 220 cm
- Hæð undir skyggni: 220 cm
- Vatnsheldni: 4000 mm
- Innifalið: burðartaska, tjaldhælar, pumpa og tjaldstög
- Innri tjaldefni: Pólýamíð
- Ytra tjaldefni: Pólýester
- Botn: PE
- Súlur: Uppblásanlegir hólkar og trefjastangir
- Tjaldgerð: Uppblásanlegt tjald, fjölskyldutjald
- Pakkningastærð: 87 x ø 43 cm
- Hæð: cm 220 cm