0
Hlutir Magn Verð

"Nordisk Oppland 3 LW" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Nordisk Oppland 3 LW thumb Nordisk Oppland 3 LW

Nordisk Oppland 3 LW

237.900kr

Vörunúmer: 151013 FGreen

 
stærð
- +

Einstaklega rúmgott og létt 3 manna tunnel tjald frá Nordisk! Oppland 3 LW er breiðasta og léttasta 3 manna tjaldið á markaðnum en einn stærsti kosturinn við þetta tjald er extra rúmgott fortjald sem hentar vel fyrir viðveru þegar illa viðrar úti. Tjaldið er 2090gr en pökkuð þyngd er 2260 gr sem gerir tjaldið frábært fyrir gönguferðirnar. Straumlínulaga hönnun tjaldsins gerir það einstaklega sterkt í miklum vindi en Oppland 3 verið sérstaklega prófað í sterkum vindi (20m/s) til að þola álagið í íslenskri vindáttu. Tjaldsúlurnar koma frá DAC og eru í mismunandi litum til að auðvelda uppsetningu og þær eru gerðar úr súper léttu og sterku áli. Tjaldið er auðvelt að pakka saman og með góðri loftræstingu bæði að framan og aftan. Tjaldið er gert úr sterku 100% Ripstop nælon efni.

Tjaldhiminn: 100% nælon 10D Ripstop efni. sílíkon húðað, 2000 mm/cm2 vatnsvörn, 58g/m2, slitþol: 8 kg Innra tjald: 100% RipStop 15D nælon efni, húðað (e. cire) Tjaldbotn: 100% 20D nælon efni, PU húðað, 90g/m2,8000mm/cm2 vatnsvörn

  • Ytra tjald sett upp fyrst
  • Straumlínulaga hönnun
  • Tjaldstangir úr áli, mismunandir litur eftir staðsetningu
  • Tjaldhælar úr áli sem koma frá DAC
  • Mjög rúmgott fortjald
  • Vindprófað: 20m/s
  • Tvennir inngangar
  • Rennilás allan hringinn við inngang
  • Frábær loftun
  • Moskító net við inngang að svefnálmu
  • Netavasar að innan fyrir smáhluti
  • Tveir krókar fyrir lampa að innanverðu
  • Geymslupoki með stillanlegum böndum
  • Einfalt og fljótlegt að setja tjaldið upp
  • Þyngd: 2090gr
    • Pökkuð þyngd: 2260gr
  • Pökkuð stærð (Lxd): 48cmx13cm
  • Lengd (l x w x h): 430cm x 210cm x 120cm
    • Svefnálma (l x w x h): 225cm x 190cm x 110cm