Lightent 3 Pro
Vörunúmer: 92173LOOFR OGreen
Ný og endurbætt útgáfa af Lightent 3 göngutjaldinu frá Ferrino. Lightent Pro 3 göngutjaldið er einstaklega létt þriggja manna göngutjald þar sem hægt er að tjalda ytra tjaldinu fyrst. Tjaldið er úr sterku pólýester 100% endurunnu efni með Ribstop áferð sem hindrar að langar rifur myndist í efninu ef ske kynni að gat komi á efnið. Auðvelt í uppsetningu svo þú þarft ekki að hafa áhyggjur að vera lengi að setja tjaldið upp, sjá nánar myndband hér að neðan. Tjaldsúlurnar koma í mismunandi litum til að auðvelda uppsetningu en þær eru gerðar úr léttu en sterku áli. Tjaldsúlurnar eru faldar inn í ytra byrðinu á tjaldinu fyrir auka vörn. 3000 mm/cm2 vatnsvörn á ytra byrði og 8000 mm/cm2 á botni. Vasar í innra tjaldi fyrir smádót, sem og krókur til að hengja upp ljós. Fortjald fyrir bakpoka og skó. Pakkast niður og auðvelt að koma því fyrir í bakpokanum.
Tjaldhiminn: Ribstop eldtefjandi pólýester efni með límdum saumum, 3000 mm/cm2 vatnsvörn
Innra tjald: Eldtefjandi efni með flugnaneti
Tjaldbotn: Eldtefjandi pólýester 70D með límdum saumum, 8000 mm/cm2 vatnsvörn, þriggja laga vatnsvörn í hornum á botninum.
Súlur: Úr áli, tvær stangir í sitthvorum litnum til að auðvelda uppsetningu
- 3000 mm/cm2 vatnsvörn á tjaldhimni, polyester ripstop 70D
- Tjaldbotn polýester 70D, 8000 mm/cm2 vatnsvörn
- Eldtefjandi efni
- Límdir saumar á himni og botni
- Flugnanet á inngangi í innra tjaldi
- Súlur úr hertu áli (7001 T6 dúrál) í sitthvorum litlum til að auðvelda uppsetningu
- Vasar fyrir súlur á utanverðu innra tjaldi
- Tjaldhælar úr sexhyrndu áli (léttir og sterkir)
- Lofttúða
- Tvær inngönguleiðir
- Fortjald nær mest 50 cm frá innra tjaldi beggja megin
- Vasar í innra tjaldi fyrir smádót
- Krókur í innra tjaldi fyrir ljós
- Viðgerðarsett
- Hámarks þyngd: 2.75 kg
- Lágmarks þyngd: 2.50 kg
- Þyngd án innra tjalds: 1,8 kg
- Lengd: 235cm
- Breidd innra tjalds: 160cm
- Hæð: 120cm
- Pökkuð stærð: 18x43 cm