Lady Anne GTX Down Mitten dömu
Vörunúmer: 514600010
Lady Anne GTX Down Mitten lúffurnar eru hinn fullkomni valkostur fyrir konur sem vilja hámarka bæði þægindi og hlýleika þegar kemur að vali á hönskum eða lúffum. Lúffurnar eru vel hannaðar en þeim er með stílhreinum hætti skipt upp í dúnhólf, sem gerð eru úr þolmiklu stretch nylon efni með WR CO áferð sem saman veita aukna vörn og hlýleika. Fyllingin samanstendur af endurunnum dún ásamt áhrifaríkri Primaloft® Gold einangrun. Þessi blanda tryggir góða hitastjórnun samhliða því að lúffurnar eru bæði meðfærilegar og léttar í sér.
Notalegt loðfóðrið tryggir þægindi og það að lúffurnar sitja vel á höndunum. Í innanverðum lófa er hágæða mjúkt geitarskinn sem er bæði fallegt og styrkir endingu. Gore-Tex himnan skartar "Gore-Tex Plus Warm Technology" eiginleikum sem veitir vatnheldni ásamt góðri öndun, sem kemur sér einstaklega vel á köldum dögum í snjónum. Að innanverðu er ól sem smeygist á úlnliðinn, sem hægt er að losa frá, sem varnar því að lúffurnar týnist ef þú missir þær af þér t.d. í skíðabrekkunni. Hægt er að nota lúffurnar á snertiskjá. Þessar eru frábær valkostur fyrir konur sem vilja hlýjar lúffur, þægindi og mikið notagildi hvort sem ætlunin er að nota lúffurnar í skíðabrekkunni eða í útiveru vetrarins.
- Gore-tex himna
- Gore-tex Plus Warm eiginleiki, tryggir góða öndun
- Fylling: Dúnn
- Geitarleður í lófa
- Primaloft® Gold einangrun