G14 EVO
42.990kr
Vörunúmer: RAG14.NME
12 punkta jöklabroddar frá Grivel sem eru teknískir fjallamennsku broddar, blandaðir göngu, ís- og klettaklifur broddar. Fremstu tveir broddarnir er auðveldlega hægt að taka af og vera með einn í staðinn fyrir tvö. Auðvelt að stilla broddana eftir þörfum. Grivel G14 eru þolmiklir og fjölbreytilegir. Broddarnir eru með New Matic festingum. Gerðir úr 2 tegundum plasts þar sem svarti hlutinn er sterkari og þolir vel álag á meðan sá guli er mýkri og leggst vel að skóbúnaði og gefur því góðan stöðugleika. Plastið er sterkt og endingargott.
- Efni: mótað stál, stál og plast
- Heppilegir fyrir skóstærð 36-47
- Þyngd: 1154 gr
- EN 893
- 2 frambroddar
- New Matic binding
- Antibott snjóplötur fylgja
- Auðstillanlegir
- Gerðir úr húðuðu stáli
- ATH - aukabroddar fyrir G14 fást í verslun