0
Hlutir Magn Verð

"BLIZ Fusion Photocromic" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
BLIZ Fusion Photocromic thumb BLIZ Fusion Photocromic

BLIZ Fusion Photocromic

26.990kr

Vörunúmer: 52105-13P MBlack

 
Bliz
- +

Íþróttasólgleraugu fyrir kröfuharða og metnaðarfulla einstaklinga. Fusion gleraugun frá Bliz henta vel fyrir bæði kynin en þau eru fullkominn valkostur fyrir hjólreiðar, skíðin og aðra krefjandi útivist. Sterkbyggð sólgleraugun eru gerð úr Grilamid TR90 efni sem skilar sér í léttari og þjálli umgjörð. Með Jawbone tækninni er hægt að taka neðri umgjörðina af. Þannig er auðveldara að skipta út linsunni eða breyta útliti umgjarðarinnar. Stillanleg nefklemma og endar gera þér kleift að stilla gleraugun svo þau sitji þétt að.

Nano Optics™ Photochromic linsa er litaskiptandi gler með vörn gegn móðusöfnun. Linsan verður sjálfkrafa dekkri eða ljósari eftir styrkleika sólargeislanna í umhverfinu (UV geislum), færir þér sem sagt þá vörn sem þú þarft hverju sinni út frá birtustigi umhverfisins. Linsan hefur birtustuðla á bilinu 2 til 4. Það þýðir að þú færð aukna vörn gegn sólargeislum, þegar þess þarf, þegar sólin er sem hæst (stuðull 4). Þessi íþróttagleraugu eru frábær valkostur fyrir bæði byrjendur sem lengra komna.

  • Birtustuðull (CAT): 1-3
  • Ljóshleypni (VLT): 50-14%
  • Matt black/grey
  • Linsa: Nano / Photochromic Brown w Blue Multi 
  • Stærð: M/L
  • 100% vörn gegn útfjólubláum geislum
  • Sterkbyggð linsa og umgjörð
  • Lágmarks móðusöfnun vegna loftgata
  • Rispufrí linsa
  • Sveigjanleg nefklemma
  • Endar spanganna eru sveigjanlegir fyrir aukið grip
  • Þjál umgjörð
  • Stamt efni er á enda spanganna fyrir aukið grip og þægindi
  • Þyngd: 40gr (34 gr án neðri umgjarðar)


Tengdar vörur

59.990kr
Endurace Skin 2024
119.990kr
Redline 3,0 F2
49.990kr
Active Pro 2024
69.990kr
Atmos AG 65 Blk