260 Tech LS Turtleneck
22.990kr
Vörunúmer: 0A56IE001 Blk

Karlmanns síðermabolur með uppháum kraga. Hann er gerður úr 260 g/m2 Merino ull sem heldur líkamanum heitum en andar jafnframt vel. Bolurinn er einstaklega mjúkur og er hentugur sem innra lag. Flatir saumar koma í veg fyrir núning og hann er síðari að aftan sem gerir bolinn ennþá hentugri í göngur og aðra útivist. Náttúruleg vörn gegn bakteríum og lykt þýðir að þú þarft ekki að þvo bolinn eftir hverja notkun og hann hentar því einnig dagsdaglega.
- Þykkt: 260 g/m2
- 100% Merino wool
- Beint snið
- Hentar vel sem innra lag
- Hentar vel í snjó, göngur og aðra útivist.
- Hlýr, mjúkur og lyktar ekki
- Lengri ermar
- Flatir saumar sem koma í veg fyrir núning.
- Síðari að aftan
- Má setja í þvottavél
- Má ekki setja í þurrkara