Skíðajakki síður stráka
Vörunúmer: 34W4974 Olive
Flottur skíðajakki sem er frábær valkostur fyrir skíða- og snjóbrettastráka! Jakkinn er nokkuð síður og er aðeins síðari að aftanverðu. Bólstraður með "Feel Warm Flock Flat" gerviefni sem er mjúkt viðkomu og veitir góða hlýju jafnvel í köldum og blautum aðstæðum. Clima Protect himnan ásamt vatnsfráhrindandi áferð á ytra birði tryggja góða vörn gegn slæmu veðri og viðhalda á sama tíma mjög góðri öndun.
Margir áhrifaríkir eiginleikar vinna hér saman að því að verja vel gegn veðri svo öll upplifun í skíðabrekkunni verði sem best. Að innanverðu er vasi úr mesh efni, fyrir smáhluti. Hægt er að stilla ermar eftir þörfum með frönskum rennilás, á innanverðum ermum er teygjanlegt stroff sem er aðsniðið og fellur þétt og þægilega að. Vindvörn er við framanverðan rennilás, auk þess sem efni kemur yfir rennilásinn efst, sem ver hökuna fyrir ertingu. Stillanlegt stroff er neðst á jakkanum (með snúrugöngum) og tveir renndir hliðarvasar, fyrir kaldar hendur og nauðsynjar. Sérstakur vasi fyrir skíðapassann er á ermi.
- Innri vasi úr netaefni
- Vatnsheldni: WP 10.000
- Öndun: MVP 10.000
- Endurskin á völdum stöðum
- Vasi á ermi fyrir skíðapassa
- Tveir hliðarvasar
- Stillanleg og áföst skjólgóð hetta
- Hægt er að stilla stroff neðst á jakka
- Teygjanleg stroff á úlnliðum
- Feel Warm Flat tækni: mjúkt og hlýtt fóður
- Vatnsfráhrindandi
- Clima Protect® tækni: Tryggir góða vörn og öndun