Vertical GoreTex Pro Skeljakki
129.990kr
Vörunúmer: G80487020 SolB

Vertical GoreTex Pro skíðaskeljakkinn frá Peak Performance er einn vandaðasti skeljakkinn þeirra fyrir freeride skíðafólk. Jakkinn er hannaður í samvinnu við atvinnu skíðafólk og ber það svo sannarlega með sér.
Saumar jakkans eru þéttir og er jakkinn algjörlega veðurheldur, en um leið andar flíkin ótrúlega vel og hreyfir sig vel með þér.
Hetta jakkans er hönnuð þannig að þú getur sett hana yfir skíðahjálminn og hægt er að stilla hettuna á þrjá vegu (hæð, breidd og stærð).
Jakkinn er síðari að aftan, undir höndum er rennilás sem þú getur rennt niður fyrir aukna loftun og í hálsmáli er flísfóður sem verndar hökuna þegar þú ert með rennt alveg upp í háls.
Aðrir skemmtilegir eiginleikar jakkans: Efni til þess að þurrka af skíðagleraugum, snjóbelti sem hægt er að smella af til þess að festa jakkann við skíðabuxurnar. RECCO® Rescue System reflector.
- Þyngd: 730g
- Snið: "relaxed"
- Vatnsheldni: 28.000mm
- Öndun: RET <17.5m2
- Rennilás: Full front, 2-way YKK AquaGuard® zipper



