Vertical GoreTex 3L skeljakki
89.990kr
Vörunúmer: G80357050 OlExtreme
Einn af helstu skeljökkunum fyrir fjallaskíðin úr smiðju Peak Performance. Jakkinn er gerður úr þriggja laga Gore-Tex® efni sem er einstaklega vindhelt og vatnsfráhrindandi. Það þýðir að jakkinn býður upp á einstaklega mikla vörn í alls kyns veðri og er tilvalinn fyrir mismunandi vetraríþróttir. Loftop á jakkanum tryggja góða öndun ásamt að vera gæddur fleiri eiginleikum. Vatnsheldir YKK rennilás að framan og á vösum en stillanleg hettan passar yfir skíðahjálminn.
- Þriggja laga Gore-Tex® efni
- Vatnsvörn: 28.000mm
- Öndun: RET<13m2
- Tilvalinn fyrir fjallaskíðin
- Vindheldur
- Snið: Laust (e. Relaxed fit)
- Vatnsvörn
- Snjóhlíf að innanverðu við stroff
- Loftgat á hliðum fyrir auka öndun
- Tveggja átta YKK AquaGuard® vatnsþéttir rennilásar
- PFC laust vatnsfráhrindandi efni
- Styrking á álagssvæðum
- Stillanlegt band í mitti
- Hökuvörn á rennilás ( svo rennilás særi ekki)
- Hægt er að þrengja að hettu og aðlaga eftir þörfum, bæði að aftanverðu og á báðum hliðum hettunnar
- Stillanlegt stroff sem hægt er að þrengja eftir þörfum
- RECCO® Rescue tækni
- Tveir renndir handvasar
- Renndur brjóstvasi
- Þyngd: 0,71 kg