0
Hlutir Magn Verð

"Safarica Indian Hills 440 Air" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Safarica Indian Hills 440 Air thumb Safarica Indian Hills 440 Air
Safarica Indian Hills 440 Air thumb Safarica Indian Hills 440 Air
Safarica Indian Hills 440 Air thumb Safarica Indian Hills 440 Air
Safarica Indian Hills 440 Air thumb Safarica Indian Hills 440 Air

Safarica Indian Hills 440 Air

214.990kr
171.992kr

Vörunúmer: MAR-112184

 
Uppselt

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

Safarica Indian Hills 440 Air er uppblásið 4 til 6 manna tjald með beinum tjaldveggjum sem veitir mikla lofthæð í tjaldinu. Skipulag innrýmis er fjölbreytt, t.d er hægt að auka innrýmið verulega með því að fjarlægja fremsta þilið. Einnig er hægt að breyta svefnklefunum í einn stóran svefnskála með því að taka milliþilin í burtu. Á sólríkum dögum er hægt að sitja undir rúmgóðu skyggninu sem veitir jafnframt gott skjól í öllum veðrum, t.d. meðan grillað er.

 

Þægilegt svefnpláss
Fjölskyldutjaldið veitir framúrskarandi svefnþægindi. Svefnrýmin eru extra löng og eru búin geymsluhólfum. Þannig auðvelt að geyma alla smá fylgihluti í þessum rýmum. Auk þess eru svefnrýmin dökk og tryggja þannig góða myrkvun svo hægt sé að ná góðum nætursvefni á íslenskum sumarnóttum. Loftun er mjög góð í tjaldinu sem tryggir gott loftflæði.

 

Tjaldumhverfi eins og best verður á kosið
Fortjaldið er mjög rúmgott og með góðu loftflæði. Undir skyggninu er hægt að festa stormstag til að tryggja stöðuleika í vondum veðrum. Vatnsheldur botndúkurinn er límdur við tjaldið sjálft til að halda tjaldinu þurru. Stórir gluggar fortjaldsins veita mikla birtu inn í rýmið. Gluggatjöldin eru þeim kostum gædd að geta myrkvað tjaldið að mestu leiti þegar þau hylja gluggana alveg.

 

 

Auðveld uppsetning
Það er mjög auðvelt að tjalda Indian Hills 440 Air. Tjaldið er búið uppblásnum hólkum sem fljótlegt er að pumpa lofti í og gera það klárt til næturdvalar.

 

Tæknilýsing:

  • Stærð (manneskjur): 6 
  • Fjöldi svefnrýma: 3
  • Stærð fortjalds: 250 x 440 cm
  • Stærð rýmis undir skyggni: 165 x 440 cm
  • Stærð fyrsta og þriðja svefnrýmis: 230 x 130 cm
  • Stærð annars svefnrýmis: 230 x 150 cm
  • Stærðir þriggja svefnrýma: 230 x 440 cm
  • Stærð tjalds: 655 x 440 cm
  • Þyngd: 29,5 kg
  • Hæð í svefnrými: 205 cm
  • Hæð í fortjaldi: 230 cm
  • Hæð undir skyggni: 230 cm
  • Vatnsheldni: 4000 mm
  • Innifalið: burðartaska, tjaldhælar, pumpa og tjaldstög
  • Innri tjaldefni: Pólýamíð
  • Ytra tjaldefni: Pólýester
  • Botn: PE
  • Súlur: Uppblásanlegir hólkar og trefjastangir
  • Tjaldgerð: Uppblásanlegt tjald, fjölskyldutjald
  • Pakkningastærð: 90 x ø 46 cm
  • Hæð í cm 230 cm