Primus Frigg hella m/kveikju
Vörunúmer: PRI-208971
Þessi öfluga Frigg gashella, sem Íslendingar hafa svo góða reynslu af í fjölda áratuga, er frábær fyrir stóra og þunga potta. Frigg gashellan getur komið sér vel ef það vantar aukahellu þegar eldað er fyrir stóran hóp og auka eldunarhellu er þörf.
Gashellan er fullkomin viðbót við hefðbundna eldavél, í sumarbústaðinn eða í útileguna. Breið gashellan dugar mjög vel fyrir stærstu potta og gefur frá sér öflugan tvöfaldan loga sem framkallar suðu fljótt og örugglega. Í brennaranum eru frárennslisgöt sem halda loganum gangandi ef sýður upp úr. Innbyggður Piezo-kveikjarinn tryggir að hægt er að kveikja á brennaranum við ýmsar krefjandi aðstæður. Að eldun lokinni er handhægt að flytja gashelluna með áföstum gaskútnum á milli staða með því að taka um áfast handfangið.
Suðutími í venjulegum potti: 6 mín
Gerð eldsneytis: Própangas (2 kg áfyllanlegir gaskútar)
- Hæð: 22,5 cm
- Breidd: 9 cm
- Þyngd: 726 g
- Afl: 2200 w
- Gasnotkun: 160 g/klst
- Gas ekki innifalið