Ice Axe Double Spring
9.490kr
Vörunúmer: PJDSPRINGER
Teygjanlegur gormur sem forðar þér frá því að týna ísöxum í klifri í ís eða klettum. Tvær karabínur eru festar á sitt hvora ísöxina (í litla gatið á enda skaftsins) og gormaólin heldur í ísaxirnar fyrir þig svo allt er á sínum stað. Lykkja er á endanum sem þrædd er upp á klifurbeltið, allt er því kyrfilega fest. Með þessum hætti er auðveldlega hægt að skipta á milli þess búnaðar sem verið er að nota. Góð teygja er til staðar svo handahreyfingar eru ekki heftar á nokkurn hátt og leyfa þér að teygja handleggina út eins vel og hægt er þó að þú haldir vel í ísaxirnar. Fyrirferðarlítið þegar þörf er á og teygist eftir þörfum.
- Gormaól fyrir ísaxir
- Tvær karabínur á endum
- Lykkja sem krækist við klifurbelti
- Teygist vel og heftir ekki handahreyfingar
- með Rotor