0
Hlutir Magn Verð

"G12 EVO" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
G12 EVO thumb G12 EVO
G12 EVO thumb G12 EVO
G12 EVO thumb G12 EVO

G12 EVO

33.990kr

Vörunúmer: RAG12.NME

 
Grivel
- +

Sterkir 12 punkta broddar frá GRIVEL sérstaklega ætlaðir fyrir almenna fjallamennsku, blandað ís- og klettaklifur og vægar leiðir við fossa. Auðvelt er að stilla broddana eftir þörfum. Broddarnir eru með New Matic festingum sem búið er að þróa til muna frá Cramp-O-Matic kerfinu og útkoman er einföld en áhrifarík festing sem býður upp á fjölbreytta notkun. Gerð úr 2 tegundum plasts þar sem svarti hlutinn er sterkari og þolir vel álag á meðan sá guli  er mýkri og leggst vel að skóbúnaði og gefur því góðan stöðugleika. Plastið er sterkt og endingargott. Auðstillanlegir og heppilegir fyrir skóstærð 36-47, ef fætur (og skór) eru í smærra lagi gætu 12 punkta broddar mögulega verið óþarflega mikið. Antibott snjóplötur fylgja með svo snjór safnist ekki saman undir skóna, sem er gott og mikilvægt til að hámarka öryggi í blautum snjó. Áfastar ólarnar eru sterkar og endingargóðar. Gerðir úr húðuðu stáli og 1006 gr að þyngd. 

  • Auðstillanlegir
  • 12 punkta broddar
  • Gerðir úr húðuðu stáli
  • Antibott snjóplötur fylgja
  • Henta fyrir skóstærð 36-47
  • New Matic binding
  • 2 frambroddar
  • Þyngd: 1006 gr