0
Hlutir Magn Verð

"Float 22L" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Float 22L thumb Float 22L
Float 22L thumb Float 22L
Float 22L thumb Float 22L

Float 22L

84.990kr

Vörunúmer: 23E0001 Blk

 
BCA
- +

BCA Float 22 snjóflóðabakpokinn er hannaður fyrir þá sem stunda fjallaskíði eða eru á vélsleðum. Hann býr til flot sem hjálpar við að fleyta þér upp á yfirborðið í snjóflóði, 150 lítra blaðran minnkar ekki einungis dýptina á þér í flóðinu heldur ver hún höfuðið og hálsinn gegn áverkum í flóðinu.

Float 22 snjóflóðapokinn er léttasti og vinsælasti pokinn frá BCA. Hann auðveldar þér að bera björgunarbúnaðinn, nesti, vatn og aukaföt. Allir BCA Float pokarnir eru með vatnshólfi, mótuðu baki fyrir aukin þægindi og renndum vösum á axlarólum (annar fyrir talstöðina og hinn fyrir afhleypingargikkinn)

Áfyllingarstaðir BCA í heiminum eru um 200 talsins sem gerir kerfið það auðveldasta áfyllingarkerfið á markaðnum. Nauðsynlegt er að kaupa Float 2.0 flöskuna aukalega en hún fylgir ekki með pokanum.

Float snjóflóðapokinn tryggir ekki að þú komist lífs af úr snjóflóði. Aflaðu þér þekkingar, taktu góðar ákvarðanir og vertu viss áður en þú leggur af stað.

 

  • Stærð: 22 lítrar
  • Litur: Svartur
  • Þyngd: 2.780 gr. (allt kerfið með fullri flösku), 2.222 gr. (allt kerfið án flösku), 1.560 gr. (bara pokinn)
  • Hentar baklengd á bilinu 43.1 cm upp í 50.8 cm
  • Vatnspokahólf
  • Skíðafestingar 
  • Snjóbrettafestingar
  • Hæðar stillanleg mittisól
  • Klofól
  • Sérhólf fyrir skóflu og snjóflóðastöng (blauthólf)
  • Hjálmfesting (hægt að fjarlægja)
  • Renndur vasi á mittisól
  • Ísaxarfesting