0
Hlutir Magn Verð

"Daylite Carry-On Wheeled Duffel" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Daylite Carry-On Wheeled Duffel thumb Daylite Carry-On Wheeled Duffel
Daylite Carry-On Wheeled Duffel thumb Daylite Carry-On Wheeled Duffel
Daylite Carry-On Wheeled Duffel thumb Daylite Carry-On Wheeled Duffel
Daylite Carry-On Wheeled Duffel thumb Daylite Carry-On Wheeled Duffel

Daylite Carry-On Wheeled Duffel

39.990kr

Vörunúmer: 1000-COWheeled Black

Uppselt

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager


Daylite Carry-On Wheeled Duffel er 40L taska sem er hönnuð með léttleika í huga án þess að fórna notagildi eða góðri endingu fyrir. Þessi vel skipulagða og þægilega taska er tilvalin fyrir næsta ferðalag, hvort sem það er stutt skrepp upp í bústað eða lengri ferð erlendis. 
Stóra aðalhólfið auðveldar alla pökkun til muna og pökkunin verður bæði einfaldari og hraðari í kjölfarið. Tveir ytri vasar henta vel fyrir hluti sem þú þarft að hafa auðvelt aðgengi í. 
Þú getur einnig borið þessa tveggja hjóla ferðatösku á bakinu sé þess óskað, þökk sé bakpokaólum sem hægt er að taka fram með auðveldum hætti. Þetta getur komið sér einstaklega vel ef þú hefur t.d. knappan tíma á flugvellinum og þarft að komast fljótt á milli. 
Að ferðalagi loknu er hægt að fella ferðatöskuna saman svo hún taki lítið pláss í geymslu. Taskan er gerð úr bluesign® vottuðum endurunnum efnum og hefur vatnsfráhrindandi húð sem er laus við PFC efni. 

  • Bakpokaólar, sem auðvelt er að taka fram
  • Tvö hjól
  • Stendur upprétt
  • Tveir ytri vasar
  • Höldur að ofan- og neðanverðu sem auðvelt er að grípa í
  • Læsanlegir #10 rennilásar á aðalhólfi (rennast afturábak)
  • Góður vasi fyrir skilríki
  • Strappar að innanverðu, svo auðvelt sé að festa farangur
  • Innri vasar sem henta flestum vinsælum auðkennasendum (á borð við Air Tag)
  • Þyngd: 2,242kg
  • Stærð: 55H X 35W X 23D CM
  • Rúmar: 40L
  • Efni: Bluesign® vottað 600/900D endurunnið polyester ripstop efni, sem hefur vatnsfráhrindandi áferð (laust við PFC efni)