0
Hlutir Magn Verð

"Tracker 3 snjóflóðaýlir" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Tracker 3 snjóflóðaýlir thumb Tracker 3 snjóflóðaýlir
Tracker 3 snjóflóðaýlir thumb Tracker 3 snjóflóðaýlir
Tracker 3 snjóflóðaýlir thumb Tracker 3 snjóflóðaýlir

Tracker 3 snjóflóðaýlir

49.990kr
34.993kr

Vörunúmer: 23E2003.1.1

 
BCA
Uppselt

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

Tracker 3 snjóflóðaýlirinn er þekktur fyrir að vera einfaldur í notkun, nettur og léttur. Ýlirinn er hannaður til að passa vel í vasa og er hann það sem björgunarsveitarfólk, leiðsögumenn, fjallagarpar og allir þeir sem vilja ferðast létt velja. Með honum fylgir einnig sérstakt beisli.

Tveir möguleikar eru á ýlinum þegar leitað er að fleiri en einum aðila í snjóflóði. Þagga niður í merki (signal suppression, SS) þegar búið er að staðsetja fyrsta einstaklinginn og leita þá að þeim næsta. Hinn möguleikinn er að sjá stóru myndina (Big picture, BP), þá sýnir ýlirinn stefnu og fjarlægð allra merkjanna. 
Ef annað snjóflóð kemur fer ýlirinn sjálfkrafa á "sendingu" ef engin hreyfing er á þér.

Þessi ýlir er þriggja loftneta, stafrænn og mjög hraðvirkur sem þýðir hann leiðréttir stefnu og fjarlægð í rauntíma. 
 

  • Leitarsvið: 50 metrar
  • Tíðni: 457 kHz
  • Rafhlöður (3 x AAA)
  • Rafhlöðuending: Lágmark 1 klst. í leitarham eftir 200 klst. í sendingarham (250 klst. einungis í sendingarham eða 50 klst. einungis í leitarham)
  • Stærð: 11.6 x 7.1 x 2.4 cm.
  • Þyngd: 215 gr. (með rafhlöðum)
  • Þyngd á beisli: 120 grömm