Active C
22.990kr
16.093kr
Vörunúmer: N190400701

ATH - Skórnir eru rauðir og svartir ekki bláir
Frábærir gönguskíðaskór fyrir vana og byrjendur. Active C eru með hærri kraga fyrir meiri stuðning um ökklann. Henta vel fyrir hefðbundna göngu og eru í senn léttir og þægilegir skór. Skórnir opnast vel með rennilás að ofanverðu. Gott er að taka einu númeri stærra en þú notar af venjulegum skóm. Skórnir veita þér þau þægindi sem þú þarft svo klukkustundum skiptir í klassískri gönguskíðagöngu. Skórnir hafa góðan stöðugleika og "RevoWrap" reimamynstrið heldur fætinum á réttum stað án þess að óþægileg erting á álagsstöðum eigi sér stað. Breytt hönnun á hælnum veitir meiri stuðning og heldur fætinum þínum á sínum stað.