Helium Down Parka
46.990kr
Vörunúmer: G79627030
Helium línan frá Peak Performance skartar hinu klassíska "quilt" mynstri og hefur verið gríðarlega vinsæl í yfir tíu ár!
Úlpan er hin glæsilegasta og er einstaklega létt og meðfærileg þrátt fyrir stærð. Vind- og vatnsfráhrindandi skelin ásamt hágæða 90/10 dún einangrun gerir úlpuna að frábærum valkosti fyrir útiveru og uppáhalds útivistina dags daglega.
Notaðu úlpuna sem ytra lag eða undir skeljakka fyrir aukinn hlýleika. Eingöngu rekjanlegur dúnn er notaður, sem hægt er að rekja í gegnum Track My Down® verkefnið. Úlpan er gerð úr endurunnu polyamide sem er laust við PFC efni.
- Fislétt og þægileg
- Mikið notagildi
- Notuð ein og sér, sem ytra eða innra lag
- Þyngd: 0,33kg