Backbone bakbrynja
19.990kr
Vörunúmer: 58901-10
Bakbrynjan frá BLIZ er hönnuð og þróuð í Svíþjóð og veitir auka öryggi þegar þú ert á fjallaskíðum, svigskíðum eða á bretti. Burtséð frá því hvort þú er vanur eða byrjandi þá ætti öryggið alltaf að vera í fyrsta sæti. Hér er á ferðinni þægileg brynja til að fara í með stillanlegum böndum á efri og neðri hluta brynjunnar. Gerð úr teygjanlegu efni með möskva sem andar vel. Brynjan heldur teygjanleika sínum þegar þú ert á hreyfingu en stífnar við átök. Hentar fyrir bæði dömur og herra og með brynjunni fylgir auka vörn fyrir rófubeinið sem hægt er að fjarlægja. Þú átt bara einn hrygg/líkama, passaðu vel upp á hann.
- Brynjan liggur þétt að líkamanum
- Teygjanlegt mittisbelti
- Möskva efni sem andar vel
- Auka vörn fyrir rófubeinið fylgir með
- Einstakt efni í brynjunni sem stífnar upp við átök
- Hægt að fjarlægja bakplötuna til að þrífa vestið
- Hönnuð og þróuð í Svíþjóð