0
Hlutir Magn Verð

"Lightech Shingle SQ" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Lightech Shingle SQ thumb Lightech Shingle SQ
Lightech Shingle SQ thumb Lightech Shingle SQ

Lightech Shingle SQ

29.990kr

Vörunúmer: 86266NBBS Left

- +

Léttur og meðfærilegur svefnpoki frá Ferrino, aðeins 1200 gr að þyngd. Tilvalinn fyrir bakpoka ferðalögin eða enn dýpri fjallaferðir og göngur. Umfang pokans er lítið eða aðeins 17x34 cm. 

Svefnpokinn er ferkantaður í lögun sem eykur hreyfanleika í pokanum til muna. Góð hitastjórnun er til staðar en samt sem áður er svefnpokinn mjög meðfærilegur og lítið fer fyrir honum. Góð hettan verndar vel fyrir kulda. Hægt er að renna frá og fyrir pokann að innan með því að nota aðra höndina (OneTouch tækni). Rennilás pokans rennist í báðar áttir svo auðveldlega er hægt að opna pokann eingöngu að neðan, t.d .til þess að lofta um eftir þörfum. Geymslupoki fylgir með. Svefnpokinn er fáanlegur annað hvort með rennilás hægra eða vinstra megin, sem gefur möguleikann á því að renna tveimur svefnpokum saman.

Þægindamörk:

Maximum comfort: +20
Comfort: +3
Lower Comfort Limit: -2
Extreme: -18

  • Innri byrði: 100% Pólýester
  • Ytri byrði: 100% 3OOT Ripstop Pólýester
  • Fylling: 600g H.T.F Compact 
  • Þyngd: 1200 gr
  • Stærð: 215x75 cm

Skilgreining á þægindamörkum frá framleiðanda: 

Maximum comfort: Hæsta hitastig sem að meðal karlmaður getur notað svefnpokann í án þess að svitna óhóflega. Þetta er mælt með rennilása og hettu opna og handlegg fyrir utan pokann. 

Comfort: Hitastig sem að meðal kona getur sofið við alla nóttina í afslappaðri stellingu. 

Lower Comfort Limit: Lægsta hitastig sem að meðal karlmaður getur sofið í hnipri við, án þess að vakna, í átta klukkutíma. 

Extreme: Lægsta hitastig sem að svefnpokinn getur varið meðal konu fyrir ofkælingu. Hún getur sofið illa í sex tíma án þess að kjarnhiti hennar verði hættulega lág.