Ferrino Pilier 3
Vörunúmer: 91163LAAFR
Ferrino Pilier 3 er þriggja manna fjögurra árstíðar tjald sem er hannað til að standa af sér krefjandi aðstæður í mikilli lofthæð. Vandað göngutjald sem er auðvelt í uppsetningu svo þú komist í skjól sem fyrst ef þess er þörf á. Gott svefnrými er í tjaldinu fyrir þrjá. Einn inngangur er inn í tjaldið og í fortjaldinu er pláss fyrir bakpoka og skó. Tjaldsúlurnar koma í mismunandi litum til að auðvelda uppsetningu en þær eru gerðar úr léttu en sterku áli. Tjaldsúlurnar eru faldar inn í ytri byrði tjaldsins fyrir auka vörn. 4000 mm/cm2 vatnsvörn á ytra byrði og 8000 mm/cm2 á botni. Vasar í innra tjaldi fyrir smádót, sem og krókur til að hengja upp ljós. Netapoki er í lofti fyrir smáhluti eða poka.
Tjaldhiminn: 50D, 80g/m2 pólýester Ripstop húðað efni, 4000 mm/cm2 vatnsvörn
Innra tjald: Vatnsfráhrindandi 70D eldtefjandi pólýester Ripstop efni sem andar jafnframt vel
Tjaldbotn: Eldtefjandi pólýester 70D með límdum saumum, 8000 mm/cm2 vatnsvörn,
Súlur: Úr áli, þrjár stangir í sitthvorum litnum til að auðvelda uppsetningu
- Fjögurra árstíðar tjald
- 4000 mm/cm2 vatnsvörn á tjaldhimni og 8000 mm/cm2 botni
- Einfalt í uppsetningu
- Límdir saumar á himni og botni
- Þrefalt efni þar sem mest álag er, aukinn styrkur og þar með ending
- Gluggar úr TPU efni
- Þrjár súlur úr hertu áli (7001 T6 dúrál)
- Súlurnar rennast í tjaldhiminn við uppsetningu
- Innra tjald hangir frá tjaldhimni
- Fortjald við hurðarop
- Hægt að hafa tjaldhurðar opnar með festingum.
- Hægt að lyfta svuntu frá við glugga.
- Svefndyr með moskítóneti sem hægt er að renna frá og geyma í innri tjaldvasa
- Tjaldhælar úr áli (léttir og sterkir)
- Viðgerðarsett
- Vasi fyrir smádót
- Pökkuð stærð: 52x20cm
- Hámarks þyngd: 4,65 kg
- Lágmarks þyngd: 4,4 kg
- Lengd: 230cm
- Breidd: 210cm
- Mesta hæð: 125cm