0
Hlutir Magn Verð

"Nightec 800" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Nightec 800 thumb Nightec 800
Nightec 800 thumb Nightec 800

Nightec 800

37.990kr

Vörunúmer: 86366NRR

 
Ferrino
Uppselt

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

Ferrino Nightec 800 svefnpokinn er hlýr og góður svefnpoki sem hentar einkar vel við kaldar og krefjandi aðstæður. Pokinn er einstaklega hlýr þökk sé “shingle-tile” uppbyggingu pokans sem viðheldur hita vel en tekur lítið pláss. Hitatapi er haldið í algjöru lágmarki með staðsetningu sauma sem eru aldrei á sama stað (á ytra og innra byrði). Tvöfaldur rennilás svefnpokans skilar sér í mjög góðu aðgengi í pokann og miklum þægindum. Auka rennilás (55 cm) er staðsettur á móti aðal rennilás pokans. Auðvelt er að opna með tvöfalda rennilásnum í botni pokans, til þess að hitastjórna sem best eftir aðstæðum. Hægt er að opna og loka hettunni í innanverðum pokanum með aðeins annari höndinni (með auðveldum hætti) með "One Touch" tækni. Kuldavarin hetta og vasi fyrir smáhluti. Geymslupoki fylgir. 

Þægindamörk:

Maximum Comfort: +15
Comfort: -7
Lower Comfort Limit: -14
Extreme: -34

Innra byrði: 100% 360T 30D Ripstop Polyester recycled
Ytra byrði: 100% 66D 190T Polyester recycled
Fylling: microfibre 1620 g shingle construction
Þyngd: 2.300 kg
Stærð: 220x80x55 cm
Lögun á poka: Múmmía
Pökkuð stærð mest: 25x45 cm  
Pökkuð stærð minnst: 25x38 cm 

Skilgreining á þægindamörkum frá framleiðanda:​
Maximum comfort: Hæðsta hitastig sem að meðal karlmaður getur notað svefnpokann í án þess að svitna óhóflega. Þetta er mælt með rennilása og hettu opna og handlegg fyrir utan pokann.
Comfort: Hitastig sem að meðal kona getur sofið við alla nóttina í afslappaðri stellingu.
Lower Comfort Limit: Lægsta hitastig sem að meðal karlmaður getur sofið í hnipri við, án þess að vakna, í átta klukkutíma.
Extreme: Lægsta hitastig sem að svefnpokinn getur varið meðal konu fyrir ofkælingu. Hún getur sofið illa í sex tíma án þess að kjarnhiti hennar verði hættulega lár.