Supermoon Bio Hoodie flíspeysa dömu
34.990kr
Vörunúmer: 222W228 Am/Blk
Hér er á ferðinni hlý og þægileg flíspeysa sem hentar alls kyns útivist. Gerð úr 260gsm PrimaLoft® Bio™ flísefni sem er niðurbrjótanlegt og einstaklega mjúkt viðkomu, sem hefur góða öndun og veitir góða hitaeinangrun.
Peysan er hönnuð með mikil þægindi í huga samhliða krefjandi útiveru, hettan passar vel undir hjálm, stroff tryggir aukinn hlýleika á köldum dögum og margir renndir vasar tryggja öryggi nauðsynja þegar þú ert á ferðinni.
Flíspeysan er í senn umhverfisvæn, fjölhæf og stílhrein og skartar Artilect ísaumuðu merkinu fyrir ævintýralegt útlit. Supermoon flíspeysan er mögulega hin fullkomna flík fyrir útiveruna þína.
- Gerð úr 100% endurunnu efni
- Hettan fellur vel undir hjálm
- Tveir renndir handvasar
- Renndur brjóstvasi
- PrimaLoft® Bio fóður í vösum
- Lycra stroff
- PrimaLoft® Bio™ flísefni er bluesign vottað