Seral 7
17.990kr
Vörunúmer: 1000-Seral Claret Re

Seral 7 mittistaskan er fullkomin lausn fyrir þá sem vilja taka með sér helstu nauðsynjar fyrir hjólreiðatúrinn án þess að vera með mikla þyngd. Taskan er fyrirferðalítil, 7 lítra taska, en þó fullbúin öllum þeim þægindum sem óskað er eftir fyrir góðan dag á slóðanum og hentar vel krefjandi aðstæðum.
Seral 7 kemur með 1,5 lítra vatnspoka og innbyggðum segli svo drykkjarslangan helst á sínum stað, jafnvel í krefjandi aðstæðum. Taskan skiptist í tvö hólf, aðalhólf sem er stærra og fremra hólfi, bæði með rennilás ásamt tveimur pokum á mittisólinni. Seral 7 aðlagast vel að líkamanum og AirScape™ loftun á bakhluta töskunnar gefur gott loftflæði við mjóbakið. Létt og þægileg taska sem er frábær ferðafélagi
- Innbyggðir skipulagsvasar.
- Renndir vasar framan á mittisól.
- Vasi fyrir vatnspoka.
- Innbyggðir netavasar.
- Innbyggð festing fyrir lykla.
- Hliðarólar til að aðlaga pokann vel að líkamanum.
- Festing fyrir LED ljós.
- AirScape™ loftun við mjóbak.
- 1,5 lítra Hydraulics™ vatnspoki fylgir með.
- Bitstútur sem gefur hraðan en mjúkan sopa.
- Þyngd: 0,4 kg.
- Stærð í cm: 20 x 33 x 15
- Efni: 210D Poly Honeycomb