0
Hlutir Magn Verð

"Raptor 14" hefur verið sett í körfuna þína.

Skoða körfu
Raptor 14 thumb Raptor 14
Raptor 14 thumb Raptor 14
Raptor 14 thumb Raptor 14
Raptor 14 thumb Raptor 14
Raptor 14 thumb Raptor 14

Raptor 14

35.990kr

Vörunúmer: 10005042 Blk

- +

Osprey Raptor 14 er frábær hjólapoki sem tryggir þér allt sem þú þarft fyrir hjólatúrinn. Innbyggður 2,5L vatnsbrúsinn tryggir að þú lendir ekki í vökvaskorti og gott skipulag pokans sér til þess að þú getir haft allt á sínum stað. Auðvelt aðgengi er í vatnspokann svo auðvelt er að fylla á eftir þörfum. Innbyggður segull tryggir að vatnsslangan helst á sínum stað. Þægilegt AirScape™ bakið og ólarnar tryggja góða öndun og kælingu þrátt fyrir mikil átök á hjólinu. BioStretch™ mittisbeltið veitir einnig frábært loftflæði. Sérstakt LidLock™ kerfi sér til þess að hjálmurinn þinn helst fastur á sínum stað, án þess að hætta sé á að hann rispist innan í pokanum. Gott skipulag í bakpokanum innanverðum tryggir að þú getur haft hvern hlut á sínum stað og auðvelt aðgengi er í öll hólf. Neðst í pokanum er gott aðgengi í ToolWrap™ geymslusvæði pokans fyrir mögulega varahluti fyrir hjólið, sem þú vilt jafnvel geta hafa meðferðis. Á framanverðum pokanum er gott pláss fyrir stærri hluti eða jafnvel svæði fyrir blauta hluti. Gott endurskin á pokanum og LED tengi tryggir sýnileika í myrkri.  

Frábær valkostur þetta! 

  • Innbyggður 2,5L vatnsbrúsi 
  • Gott AirScape™ bak úr svampi tryggir þægindi og góða aðlögun að baki notandans
  • BioStretch™ mjaðmabelti og axlarólar
  • Innbyggt ToolWrap™ geymslusvæði fyrir aukahluti (rúllast út)
  • Innri vasi fyrir vatnsbrúsa
  • Festing fyrir lykla
  • LidLock™ hjálmafesting
  • Vatnsslangan festist með segli, helst á sínum stað (ekki hellist úr)
  • Endurskin er á pokanum
  • Segull á brjóstól (heldur vatnsslöngu á sínum stað)
  • Renndur vasi sem tryggir að t.d. sólgleraugu rispast ekki
  • Vasi að framanverðu með auðvelt aðgengi
  • Efni: bluesign® vottað endurunnið 210D nælon efni. Efnið hefur verið meðhöndlað með vatnsfráhrindandi efni (DWR), laust við PFAS.
  • Þyngd: 1,0 kg
  • Stærð: 48 x 22 x25 cm