Keen Evofit 1
20.990kr
Vörunúmer: KM1388TRBL

Sandalar sem eru sérstaklega þægilegir í að vera. Þessir leggjast vel að fætinum vegna sokks sem faðmar ökklann með þægilegum hætti. Lykkja er við hæl og rist sem auðveldar þér að smeygja þér ofan í sandalana og hægt er að þrengja að við rist og stilla eftir þörfum. Táin er upphá og ver tærnar því gegn steinum, höggum og hnjaski. Loftrenndur eru á báðum hliðum sem halda loftstreyminu góðu. Ytra lagið er fljótt að þorna ef blotnar og einnig eru styrkingar á vel völdum álagsstöðum. Innlegg sem gefur góðan stuðning undir fótinn sem hægt er að fjarlægja. Innleggið er mjúkt og þægilegt viðkomu. Einstök Cleansport NXT™ tækni heldur óæskilegri líkamslykt í skefjum. Heppilegur á ströndinni.
- Cleansport NXT™ tækni heldur óæskilegri líkamslykt í skefjum.
- Innlegg gefur góðan stuðning.
- Hægt er að fjarlægja innleggið.
- Upphá tá sem ver tærnar gegn höggum, steinum og hnjaski.
- Þægilegt stroff faðmar ökklann
- Hægt að þrengja að og stilla yfir ristina
- Lykkja við hæl og tungu sem auðveldar þér að smeygja þér í.
- Aquagrip gúmmí á ytri sóla sem gefur gott grip