Fairview 40
27.990kr
Vörunúmer: 5-499 RainforestGre

Fairview bakpokinn er dömuútgáfa af Farpoint pokanum vinsæla sem mun koma sér vel í hvaða ferðalagi sem er. Fairview 40 er í raun ferðataska og bakpoki sameinuð í frábæran ferðafélaga og er að auki léttasta ferðataskan frá Osprey sem einnig er hægt að nota sem bakpoka. Góðar axlar- og mjaðmaólar auk sterkrar burðargrindar gera þér kleift að bera dótið þitt þægilega á milli staða. Aðalhólfið opnast alveg með rennilás líkt og á ferðatösku, skipulag verður því leikur einn.
Bið eftir farangri heyrir sögunni til með þessum netta 40 lítra poka sem má koma með þér sem handfarangur í flug skv. reglum EU.
Fairview hefur tvímælalaust sannað gildi sitt meðal heimsreisufara.
- Fóðraðar axla- og mjaðmaólar með góðri öndun sem hægt er að loka af í renndu hólfi, allt eftir því hvort verið er að bera pokann á bakinu eða nota hann sem ferðatösku
- Vasar úr teygjuefni framan á poka
- Stillanleg brjóstól með neyðarflautu
- Tvö hólf, annað fyrir tölvu/spjaldtölvu og smáhluti og stórt aðalhólf fyrir farangur
- Fóðraðir vasar fyrir fartölvu og spjaldtölvu í fremra hólfi
- Ólar í farangurshólfi til að halda búnaði á sínum stað
- Renndur netavasi innan á framhlið á aðalhólfi
- Léttur burðarrammi
- Fóðrað handfang á hlið og ofan á pokanum sem að lítið fer fyrir
- Opnast mjög vel, framhliðin er rennd í U svo að auðvelt er að raða í pokann
- Læsanlegir rennilásar á aðalhólfi
- Hliðarólar til að þjappa pokanum saman
- Hægt að taka með sem handfarangur í flug skv. EU reglum um hámarkstærð handfarangurs
- Þyngd: 1,44 kg
- Stærð: 54cm x 35cm x 34cm