Trivor 2
Vörunúmer: 99058IAAFR
Tveggja manna tjald frá Ferrino sem er einstaklega vandað og þægilegt. Trivor 2 göngutjaldið er tilvalið fyrir ævintýrin allan ársins hring. Ytra súlukerfi tjaldsins gerir þér kleift að setja upp tjaldið án þess að innra tjald þess blotni, jafnvel í mjög slæmu veðri. Tvöfalt aðgengi er inn í tjaldið, að aftan- og framanverðu sem skilar sér í auknum þægindum og góðu loftstreymi um tjaldið.
Tjaldhiminn: Ribstop eldtefjandi endurunnið pólýester efni með límdum saumum, 3000 mm/cm2 vatnsvörn
Innra tjald: Eldtefjandi og vatnsfráhrindandi efni úr 70D pólýester Ripstop.
Tjaldbotn: Eldtefjandi endurunnið pólýester 70D með límdum saumum, 8000 mm/cm2 vatnsvörn, þriggja laga vatnsvörn í hornum á botninum.
Súlur: Úr áli, þrjár stangir í sitthvorum litnum til að auðvelda uppsetningu
- Tveggja manna tjald, kúlulaga (e. dome)
- Gert úr eldtefjandi efnum
- Límdir saumar í gólfi og tjaldhimni
- Þriggja laga uppbygging sem styrkir hornin á tjaldbotni
- Innra tjaldið hangir á súlum
- "Hexagon" tjaldhælar úr áli
- Tvöfalt aðgengi inn í tjaldið (að aftan og framan)
- Hurðar opnast að fullu með ytra moskítóneti sem hægt er að leggja saman í vasa.
- Loftstreymiskerfi um innra tjaldið
- Vasar á innaverðu tjaldinu fyrir smáhluti
- Krókur fyrir lampa að innanverðu
- Geymslupoki fyrir tjaldið
- Viðgerðarsett fylgir með
- Minnsta þyngd: 2,8 kg
- Mesta þyngd: 3,10 kg
- Rými: 1.8 m3
- Stærð: 230x210x130 cm / 17x42 cm