Sylva 20
Vörunúmer: 10005079 TGrey
Sylva 20 er fjölhæfur bakpoki sem er sérhannaður fyrir konur. Hann er léttur með AirSpeed™ bakkerfi og LightWire™ ramma. Það þýðir enn betri loftun í bakkerfi fyrir meiri áreynslu ásamt betra burðakerfi. Nýstárleg hönnun á opi á hliðum stuðlar að enn meira loftflæði meðfram bakinu þegar mest á reynir. Straumlínulagað snið pokans, LidLock™ hjálmafesting og gott innra skipulag gerir pokann tilvalinn fyrir þá sem eru að leita að skilvirkri og þægilegri lausn á að bera búnaðinn sinn. Segulsmella er á brjóstólinni svo hægt er að festa við slöngu á vatnspoka. Góð hólf eru á hliðum þar sem auðveldlega er hægt að geyma t.d. brúsa, nesti eða léttan fatnað. Yfirbreiðsla fylgir með pokanum sem kemur sér vel ef þú lendir í rigningu. Þægilegt aðgengi er í pokann og þægilegar mittisólar fyrir geymslu á aukahlutum. Axlarólarnar eru sérhannaðar fyrir reiðhjólafólk þar sem þær eru breiðari við axlirnar fyrir meiri stöðugleika. Teygjanlegir hliðarvasar fyrir alls kyns aukabúnað ásamt sérhólfi framan á pokanum fyrir mögulega varahluti sér til þess að þú getir haft allt á sínum stað. Gott endurskin á pokanum og LED tengipunktur tryggir sýnileika í myrkri.
Allt sem þú þarft og það sem hefur verið búist við af vönduðum hjólabakpoka. Njóttu ferðarinnar áhyggjulaus, hvort sem þú ert að hjóla eða í göngu, Sylva 20 veitir þér hámarks loftun á bakinu og góðan stuðning.
- Frábært AirSpeed™ bakkerfi sem stuðlar að enn meira loftflæði
- Endurskin er á pokanum
- Lítið hólf að ofan fyrir gleraugu
- LightWire™ burðakerfi
- Festing fyrir lykla
- LidLock™ hjálmafesting
- Vatnsslangan festist með segli, helst á sínum stað (ekki hellist úr)
- BioStretch™ mjaðmabelti og axlarólar
- Vasar í fremsta hólfi til að auðvelda skipulag, t.d. á verkfærum og varahlutum
- Áföst vatnsheld yfirbreiðsla í skærum lit
- Stillanleg brjóstól
- Vatnspokinn geymist fyrir utan aðalhólfið sem gerir áfyllingu mun auðveldari
- Festing fyrir blikkljós
- Stillanleg hæð á axlarólum til að pokinn sitji sem best, hentar báðum kynjum
- Hliðarvasar og framan á úr teygjuefni
- Efni: 100D Nylon Honeycomb
- Stærð: 48 x 28 x 27 cm